Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa

7. fundur
1. október 2021 kl. 09:00 - 10:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir starfsmaður
Vilhelm Anton Hallgrímsson starfsmaður
Ragnar Bjarnason
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir Skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Umsókn um byggingaleyfi - Skógarhólar 11
Málsnúmer 202108075
Á síðasta afgreiðslufundi var tekin fyrir umsókn EGO húsa ehf. um byggingaleyfi í Skógarhólum 11 og þá voru byggingaráform samþykkt. Nú liggja fyrir aðalteikningar, afstöðumynd og skráningartafla fyrir Skógarhóla 11.
Engar athugasemdir gerðar við framlögð gögn og byggingafulltrúa falið að gefa út byggingaleyfi.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
2.
Umsókn um byggingaleyfi - Aðalbraut 16, Árskógssandi
Málsnúmer 202109114
Með erindi dagsettu 22. september, óska þau Sigurður Bragi Ólafsson og Ragnheiður Ýr Guðjónsdóttir eftir byggingaleyfi fyrir einbýlishús að Aðalbraut 16 á Árskógssandi.
Erindi frestað þar til frekari gögn hafa borist.
3.
Umsókn um byggingaleyfi - Skemma í Hofsárkoti
Málsnúmer 202103077
Með umsókn dagsettri 20. september 2021 óskar Sigvaldi Gunnlaugsson eftir byggingaleyfi fyrir skemmu að Hofsárkoti í Svarfaðardal.
Erindið er samþykkt og byggingafulltrúa falið að gefa út byggingaleyfi með þeim fyrirvara að skráningartafla berist.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
4.
Umsókn um byggingaleyfi vegna breytinga á Karlsrauðatorgi 11, Dalvík
Málsnúmer 201806022
Með erindi, dagsettu 22. september 2021, óskar Kristín A. Símonardóttir fyrir hönd Gísla, Eiríks, Helga ehf eftir endurnýjun á byggingaleyfi fyrir endurbætur á Karlsrauðatorgi 11. Upphafleg umsókn er frá árinu 2018 og fóru fyrirhugaðar framkvæmdir þá í grenndarkynningu. Um er að ræða endurbætur á húsinu inni og úti auk viðbyggingu á sólskála. Meðfylgjandi eru aðaluppdrættir, afstöðumynd og skráningartafla.
Erindið er samþykkt og byggingafulltrúa falið að gefa út endurnýað byggingaleyfi.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
5.
Umsókn um byggingaleyfi vegna viðbyggingar við Hólshús.
Málsnúmer 202006060
Tekin fyrir umsókn um byggingaleyfi frá Sólrúnu Láru Reynisdóttur frá 2020. Óskað er eftir byggingaleyfi fyrir viðbyggingu við frístundahúsið Hólshús. Erindinu var vísað frá á sínum tíma vegna ákvæða um hámarksbyggingamagn í deiliskipulagi. Búið er að breyta deiliskipulagi þannig að hámarksbyggingamagn innan lóðar var aukið þannig að byggingaleyfisumsóknin er lögð fram að nýju.
Erindið er samþykkt og byggingafulltrúa falið að gefa út byggingaleyfi.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
6.
Umsókn um byggingaleyfi - Sunnubraut 1
Málsnúmer 202006052
Lagðar fram reyndarteikningar af Sunnubraut 1 og uppfærð skráningartafla.
7.
Böggvisstaðir - byggingaleyfi
Málsnúmer 202109079
Lögð fram beiðni um skráningu byggingastjóra fyrir breytingar á Böggvisstöðum.
9.
Tilkynning um framkvæmd - Niðurrif á skorsteini í Bjarkarbraut 11
Málsnúmer 202109094
Með erindi dagsettu 16. september 2021 tilkynnir Kristján Ólafsson um fyrirhugað niðurrif á skorsteini á húsi sínu að Bjarkarbraut 11 á Dalvík.
10.
Tilkynning um framkvæmd - Innkeyrsluhurð á Ránarbraut 1
Málsnúmer 202109120
Með erindi dagsettu 24. september 2021 óskar Fiskmarkaður Norðurlands eftir leyfi til þess að búa til innkeyrsluhurð á vesturhlið Ránarbrautar 1 á Dalvík. Meðfylgjandi eru myndir sem sýna fyrirhugaða breytingu á útliti hússins.
Erindi samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
11.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202102169
12.
Umsókn um leyfi - Gluggaskipti í Hafnarbraut 10
Málsnúmer 202109138
Með erindi dagsettu 27. september 2021, óskar Katrina Kruzmane eftir leyfi til þess að skipta út gluggum í íbúð sinni að Hafnarbraut 10 á Dalvík. Meðfylgjandi eru teikningar af gluggunum.
Erindið er samþykkt og leyfi gefið fyrir gluggaskiptum í Hafnarbraut 10.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
13.
Fyrirspurn til byggingafulltrúa - Staðsetning á kolsýrutanki
Málsnúmer 202109140
Tekin fyrir fyrirspurn dagsett 30. september 2021, frá Agnesi Önnu Sigurðardóttur þar sem óskað er eftir umsögn vegna staðsetningar á nýjum 11 tonna kolsýrutanki við Öldugötu 22 á Árskógssandi (Bruggsmiðjan).
Byggingafulltrúi veitir jákvæða umsögn um fyrirhugaða framkvæmd.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.