Afgreiðslufundur byggingafulltrúa
6. fundur
14. september 2021
kl.
10:00
-
15:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir
starfsmaður
Vilhelm Anton Hallgrímsson
starfsmaður
Ragnar Bjarnason
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir
Skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Bjarkarbraut 5 - Endurskoðun aðaluppdrátta
Lagðir fram aðaluppdrættir og skráningartafla fyrir Bjarkarbraut 5 á Dalvík í tengslum við gerð eignaskiptayfirlýsingar. Fyrirliggjandi gögn samþykkt.
2.
Sunnubraut 1 - Athugasemd við grenndarkynningu
Teknar til skoðunar athugasemdir sem borist hafa vegna endurbyggingar Sunnubrautar 1 á Dalvík.
Málinu er frestað til næsta fundar og frekari gagna óskað frá hönnuði vegna hæðar hússins.
3.
Böggvisstaðir - byggingarleyfi
Byggingafulltrúa falið að gefa út endurnýjað byggingarleyfi þegar fyrir liggur skráning iðnmeistara og byggingarstjóra. Samþykkt samhljóða.
4.
Frágangur og ástand húseignar að Hafnarbraut 10 á Dalvík.
Eigendur beggja íbúða í Hafnarbraut 10 komu á fund byggingafulltrúa.
Farið yfir sjónarmið beggja aðila og fengnar upplýsingar um stöðu mála. Málsgögn verða skoðuð betur en ákveðið að grípa ekki til aðgerða að sinni.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
5.
Umsókn um byggingarleyfi - Litlu Hámundarstaðir
Birgir Ágústson hönnuður bygginga á Litlu Hámundarstöðum mætti á fundinn.
Óskað eftir því að hönnuður uppfæri umsókn um byggingarleyfi miðað við framlögð gögn.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.