Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa

6. fundur
18. ágúst 2025 kl. 15:00 - 15:30
í fjarfundi
Nefndarmenn
Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
Ólafur Elvar Júlíusson Verkefnastjóri byggingarmála
Katrín Rós Ívarsdóttir Verkefnastjóri fasteignaskráningar
Fundargerð ritaði:
Steinmar Heiðar Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Sandskeið - umsókn um stöðuleyfi fyrir gám
Málsnúmer 202506052
Erindi dagsett 9.júní 2025 þar sem Ívar Örn Vignisson sækir um stöðuleyfi fyrir 20 ft gám við Sandskeið.Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til eins árs.
2.
Kvíalækur - umsókn um smáhýsi
Málsnúmer 202507022
Erindi dagsett 3.júlí 2025 þar sem Vignir Sveinsson sækir um heimild til byggingar smáhýsis á jörðinni Kvíalæk skv. meðfylgjandi teikningu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
3.
Sandskeið - umsókn um stöðuleyfi fyrir gám
Málsnúmer 202507036
Erindi dagsett 15. júlí 2025 þar sem Hartmann Kristjánsson sækir um stöðuleyfi fyrir gám við Sandskeið.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til eins árs.
4.
Kirkjuvegur 13 - umsókn um byggingu garðskúrs
Málsnúmer 202508009
Erindi dagsett 20.júlí 2025 þar sem Ingvar Kristinsson sækir um leyfi fyrir byggingu garðskúrs á lóð nr. 13 við Kirkjuveg.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
5.
Sandskeið - umsókn um stöðuleyfi fyrir gám
Málsnúmer 202508010
Erindi dagsett 28.júlí 2025 þar sem Hjálmar Randversson sækir um stöðuleyfi fyrir gám við Sandskeið.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til eins árs.
6.
Sánuvagn - stöðuleyfi
Málsnúmer 202508025
Erindi dagsett 1.ágúst 2025 þar sem María Pálsdóttir f.h. Hælisins ehf. sækir um tímabundið stöðuleyfi fyrir sánuvagn dagana 18.-20.ágúst nk.Fyrirhuguð staðsetning er í flæðarmálinu við Sandskeið á Dalvík.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.