Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa

5. fundur
27. ágúst 2021 kl. 10:00 - 12:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir starfsmaður
Vilhelm Anton Hallgrímsson starfsmaður
Ragnar Bjarnason
Bjarni Daníel Daníelsson sviðsstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir Skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Umsókn um byggingarleyfi - Garðatröð 1a, Hamri
Málsnúmer 202108051
Tekin fyrir umsókn Óðins Gunnarssonar, um byggingarleyfi fyrir frístundahús að Garðatröð 1a á Hamri. Meðfylgjandi eru aðaluppdrættir af húsinu og skráningartafla.
Erindi samþykkt og byggingafulltrúa falið að gefa út byggingarleyfi.
2.
Frágangur og ástand hússeignar að Hafnarbraut 10 á Dalvík
Málsnúmer 201810094
Málefni Hafnarbrautar 10 rædd og ákveðið að kalla málsaðila til fundar við byggingafulltrúa.
3.
Umsókn um byggingarleyfi - Litlu Hámundarstaðir
Málsnúmer 201903018
Fjallað um stöðu byggingaframkvæmda á Litlu Hámundarstöðum.
Byggingafulltrúa falið að fylgja málinu eftir.
4.
Umsókn um byggingarleyfi - Skógarhólar 11
Málsnúmer 202108075
Tekin fyrir umsókn EGO húsa ehf. um byggingarleyfi fyrir þriggja íbúða raðhúsi að Skógarhólum 11 a, b og c á Dalvík. Meðfylgjandi eru drög að aðaluppdráttum fyrir húsið.
Byggingaráform eru samþykkt og byggingarfulltrúa falið að gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi hönnunargögn hafa borist.