Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa

3. fundur
30. apríl 2025 kl. 12:30 - 13:00
í fjarfundi
Nefndarmenn
Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
Ólafur Elvar Júlíusson Verkefnastjóri byggingarmála
Katrín Rós Ívarsdóttir Verkefnastjóri fasteignaskráningar
Fundargerð ritaði:
Katrín Rós Ívarsdóttir
Dagskrá
1.
Dalvíkurhöfn - Umsókn um byggingaleyfi - niðurrif skúrs
Málsnúmer 202504101
Erindi dagsett 29. apríl 2025 þar sem Björgvin Páll Hauksson f.h. Hafnarsjóðs Dalvíkurbyggðar sækir um byggingarleyfi fyrir niðurrifi á skúr á lóð nr. 1 við Sjávarbraut.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.
2.
Stærri Árskógur - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir vélaskemmu
Málsnúmer 202503131
Erindi dagsett þann 24. mars 2025 þar sem Guðmundur Geir Jónsson sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir vélaskemmu á lóð við Stærri Árskóg. Innkomin gögn eftir Magnús Val Benediktsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
3.
Hringtún 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - U2
Málsnúmer 202504083
Erindi dagsett þann 22. apríl 2025 þar sem Kristján Bjarnason f.h. Jökul Þorra Helgason, sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir parhúsi á lóð nr. 10 við Hringtún. Innkomin gögn eftir Kristján Bjarnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.