Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa

22. fundur
14. desember 2022 kl. 08:30 - 09:50
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Vilhelm Anton Hallgrímsson starfsmaður
Ragnar Bjarnason
Bjarni Daníel Daníelsson sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bjarni D. Daníelsson Sviðsstjóri framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Umsókn um leyfi til flutnings á þjónustuhúsi - Birnunes
Málsnúmer 202210071
Á 20. afgreiðslufundi byggingafulltrúa var tekið fyrir erindi frá Kjartani Gústafssyni sem barst í tölvupósti, dagsett 16.október 2022, þar sem óskað er eftir leyfi til að flytja tvö þjónustuhús til uppsetningar á Brimnesi. Málinu frestað til næsta fundar þar sem ekki liggja fyrir nægar upplýsingar til að taka umsóknina til afgreiðslu.
Málinu frestað þar sem umbeðin gögn hafa ekki borist. Verður tekið fyrir þegar gögn liggja fyrir.
samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
2.
Umsókn um byggingarleyfi - Garðatröð 1a, Hamri
Málsnúmer 202108051
Lokaúttekt
Lokaúttekt frestað.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum
3.
Ósk um lokaúttekt- Hafnargata 6b, Hauganesi
Málsnúmer 202211127
Ósk um lokaúttekt
Lokaúttekt frestað.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.