Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa

2. fundur
28. mars 2025 kl. 10:00 - 10:15
í fjarfundi
Nefndarmenn
Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
Ólafur Elvar Júlíusson Verkefnastjóri byggingarmála
Katrín Rós Ívarsdóttir Verkefnastjóri fasteignaskráningar
Fundargerð ritaði:
Katrín Rós Ívarsdóttir Verkefnastjóri fasteignaskráningar
Dagskrá
1.
Sjávargata 2-4 Árskógssandi - umsókn um breytta notkun
Málsnúmer 202409033
Erindi dagsett 4.september 2024 þar sem Kári Magnússon f.h. Sólrúnar ehf. sækir um breytta notkun, minniháttar breytingar á innra skipulagi og útliti húss á lóð nr. 2-4 við Sjávargötu. Byggingin er í dag skráð sem fiskverkunarhús en áform eru um að skipta byggingunni í fimm jafnstórar einingar með jafnmörgum innkeyrsludyrum. Innkomin gögn eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.