Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa

18. fundur
23. ágúst 2022 kl. 09:00 - 10:00
í fjarfundi
Nefndarmenn
Ragnar Bjarnason starfsmaður
Vilhelm Anton Hallgrímsson starfsmaður
Starfsmenn
Snæbjörn Sigurðarson starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Snæbjörn Sigurðarson Verkefnastjóri á framkvæmdasviði
Dagskrá
1.
Eignaskiptayfirlýsing - Bjarkarbraut 13
Málsnúmer 202208096
Lögð fram eignaskiptayfirlýsing sem felur í sér að skipta Bjarkarbraut 13 í tvo eignarhluta sem unnin var af Kristjáni Eldjárn Hjartarsyni byggingarfræðingi.
Framlögð eignaskiptayfrlýsing samþykkt og verður komið til HMS til skráningar.
2.
Umsókn um byggingarleyfi - Hringtún 13-15
Málsnúmer 202207045
Á 17. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa var umsókninni frestað. Ný gögn bárust frá hönnuði 18. ágúst 2022.
Erindi samþykkt. Byggingarfulltrúa falið að gefa út byggingarleyfi.