Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa

17. fundur
20. júlí 2022 kl. 10:00 - 12:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir starfsmaður
Vilhelm Anton Hallgrímsson starfsmaður
Ragnar Bjarnason
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir Skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi til sölu áfengis á framleiðslustað
Málsnúmer 202207056
Fyrir fundinum lá umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Suðurlandi dagsett 18. júlí 2022. Óskað er umsagnar byggingafulltrúa vegna umsóknar Bruggsmiðjunnar Kalda ehf. um leyfi til sölu áfengis á framleiðslustað að Öldugötu 22 á Árskógssandi.
Byggingafulltrúi veitir jákvæða umsögn.
2.
Tilkynning um framkvæmd - Endurnýjun á þaki í Ránarbraut 8
Málsnúmer 202206134
Með erindi, dagsettu 29. júní 2022, tilkynnir Gunnar Aðalbjörnsson fyrir hönd Samherja Ísland ehf.um endurnýjun og óverulegar breytingar á þaki og þakkanti að Ránarbraut 8 á Dalvík.
Byggingafulltrúi gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
3.
Umsasgnarbeiðni gisting IV,vegna Hótels Kalda
Málsnúmer 202207025
Fyrir fundinum lá umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 11. júlí 2022. Óskað er umsagnar vegna umsóknar Bruggsmiðjunnar Kalda ehf. um rekstrarleyfi vegna gistingar í flokki IV að Sjávargötu 6 á Árskógssandi.
Erindi frestað þar til lokaúttekt húsnæðis hefur farið fram.
4.
Umsókn um byggingarleyfi - Hringtún 42-48
Málsnúmer 202207018
Með umsókn, dagsettri 6. júlí 2022, óskar Ottó Biering Ottósson fyrir hönd EGOhúsa ehf. eftir byggingarleyfi fyrir fjögurra íbúða raðhús að Hringtúni 42-48 á Dalvík. Meðfylgjandi eru aðaluppdrættir og skráningartafla unnin af Arkibygg arkitektum.
Byggingaráform eru samþykkt og byggingafulltrúa falið að gefa út byggingarleyfi þegar öll hönnunargögn hafa borist.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
5.
Umsókn um byggingarleyfi - Lokastígur 6
Málsnúmer 202207043
Með umsókn, dagsettri 13. júlí 2022, óskar Hugrún Þorsteinsdóttir fyrir hönd Modulus ehf. eftir byggingarleyfi fyrir sex íbúða fjölbýlishúsi að Lokastíg 6 á Dalvík. Meðfylgjandi eru aðaluppdrættir og skráningartafla unnin af M11 arkitektum.
Byggingaráform eru samþykkt og byggingafulltrúa falið að gefa út byggingarleyfi þegar öll hönnunargögn hafa borist.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
6.
Umsókn um byggingarleyfi - Hringtún 13-15
Málsnúmer 202207045
Með umsókn, dagsettri 7. júlí 2022, óskar Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Tréverk ehf. eftir byggingarleyfi fyrir parhús að Hringtúni 13-15 á Dalvík. Meðfylgjandi eru aðaluppdrættir og skráningartafla unnin af AVH ehf.
Erindi frestað. Athugasemdum komið á framfæri við hönnuð.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
7.
Lokaúttekt - Sunnubraut 1
Málsnúmer 202006052
8.
Lokaúttekt - Hringtún 17
Málsnúmer 202011191
9.
Lokaúttekt - Hringtún 19
Málsnúmer 202011192
10.
Stöðuúttekt vegna meistaraskipta - Skógarhólar 11
Málsnúmer 202108075
11.
Stöðuúttekt vegna byggingastjóraskipta - Akurhóll
Málsnúmer 202207046
12.
Öryggisúttekt- Sörlaskjól
Málsnúmer 202105002