Afgreiðslufundur byggingafulltrúa
15. fundur
11. september 2026
kl.
09:30
-
10:30
í fjarfundi
Nefndarmenn
Steinmar Heiðar Rögnvaldsson
byggingarfulltrúi
Starfsmenn
Katrín Rós Ívarsdóttir
Verkefnastjóri fasteignaskráningar
Fundargerð ritaði:
Katrín Rós Ívarsdóttir
Verkefnastjóri fasteignaskráningar
Dagskrá
1.
Karlsbraut 1 - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 2
Erindi dagsett 11. maí 2026 þar sem Kári Magnússon f.h. Gunnþórs Jónssonar, sækir um breytingu á áður samþykktum teikningum eftir grenndarkynningu á húsi nr. 1 við Karlsbraut. Innkomin ný gögn eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
2.
Sveinsstaðir - umsókn um byggingarheimild
Erindi dagsett 26. maí 2026 þar sem Brynjólfur Árnason fh. Signýar D. Arnardóttur sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir viðbyggingu við hús að Sveinsstöðum. Innkomin gögn eftir Brynjólf Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
3.
Svarfaðarbraut 34 - umsókn um byggingarleyfi fyrir fjarskiptasendi
Erindi dagsett 7.ágúst 2026 þar sem Bjarki Guðmundsson f.h. Íslandsturna Sendastaða hf. sækir um byggingarleyfi til að koma upp fjarskiptasendi utan á Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar við Svarfaðarbraut 34.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
4.
Karlsrauðatorg 16 - Umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini
Erindi dagsett 17. ágúst 2026 þar sem Ewa Wyrostek sækir um bílastæði og úrtak úr kantsteini við hús nr. 16 við Karlsrauðatorg.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 3,5 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild eigna- og framkvæmdadeildar til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.
5.
Kambhóll - umsókn um stækkun húss
Erindi dagsett 18. mars 2026 þar sem Eyrún Anna Finnsdóttir sækir um byggingarheimild fyrir hönd Bergmanna ehf. vegna viðbyggingar fyrir forstofu og endurbætur eftir þörfum á húsinu Kambhóli (L151806). Innkomin gögn eftir Eyrúnu Önnu Finnsdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
6.
Karlsrauðatorg 11 - umsókn um byggingu geymsluskúrs
Erindi dagsett 25.ágúst 2026 þar sem Bjarni Gunnarsson f.h. Gísla, Eiríks, Helga ehf. sækir um leyfi fyrir byggingu geymsluskúrs á lóð nr. 11 við Karlsrauðatorg. Fyrir liggur samþykki Framkvæmdaráðs.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.