Afgreiðslufundur byggingafulltrúa
14. fundur
24. maí 2022
kl.
09:00
-
10:30
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir
starfsmaður
Vilhelm Anton Hallgrímsson
starfsmaður
Ragnar Bjarnason
Starfsmenn
Bjarni Daníel Daníelsson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir
skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Umsókn um leyfi til niðurrifs á geymslum að Skeggstöðum
Með erindi, dagsettu 11. maí 2022, óskar Steinunn Sigvaldadóttir eftir leyfi til þess að láta rífa tvær geymslur að Skeggstöðum í Skíðadal. Um er að ræða matshluta 02 og 04. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda Steinunnar fyrir niðurrifinu.
Erindi samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
2.
Umsókn um breytingu á skráningu og notkun fasteignar - Sjávargata 6, Árskógssandi
Með umsókn, dagsettri 17. maí 2022, óskar Agnes Anna Sigurðardóttir fyrir hönd Bruggsmiðjunnar Kalda ehf. eftir leyfi til breytingar á notkun og skráningu á Sjávargötu 6 á Árskógssandi. Um er að ræða fiskhús byggt 1986 sem breyta á í gististað í flokki III. Meðfylgjandi eru teikningar af fyrirhuguðum breytingum unnar af Smára Björnssyni byggingafræðingi.
Erindi samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
3.
Stækkun á tjaldsvæði og búningsaðstöðu í Sandvíkurfjöru á Hauganesi
Með tölvupósti, dagsettum 13. apríl 2022, óskar Elvar Reykjalín, fyrir hönd Ektafisks ehf., eftir leyfi til stækkunar á tjaldsvæði á Hauganesi, leyfi til þess að slétta úr og bera mold í land ofan fjörunnar, leyfi til þess að brúa læk og leyfi til þess að stækka búningsaðstöðu við pottana í Sandvíkurfjöru. Umhverfisráð tók erindið fyrir á fundi sínum þann 6. maí 2022 og vísaði fyrirhugaðri stækkun á búningsaðstöðu við potta í Sandvíkurfjöru til afgreiðslufundar byggingafulltrúa.
Erindið er samþykkt og leyfi gefið til að reisa tvö smáhýsi til viðbótar við pottana í Sandvíkurfjöru með vísun í gr. 2.3.6 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Framkvæmdin telst tilkynningaskyld og því þarf umsækjandi að leggja fram aðalteikningar og greinargerð hönnuðar.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
Framkvæmdin telst tilkynningaskyld og því þarf umsækjandi að leggja fram aðalteikningar og greinargerð hönnuðar.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
4.
Tilkynning um framkvæmd - útlitsbreyting vegna glugga í Skíðabraut 13-15
Með erindi dagsettu 4. maí 2022 óskar Þorsteinn Benediktsson eftir leyfi til breytinga á fjórum baðgluggum á Skíðabraut 13-15 á Dalvík.
Erindi samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
5.
Olíutankar við Dalvíkurhöfn
Með tölvupósti, dagsettum 23. maí 2022, óskar Sigurður Georg Óskarsson fyrir hönd Olíudreifingar eftir leyfi til þess að endurnýja og færa olíudælur á smábátabryggju upp á ferjubryggju í Dalvíkurhöfn. Meðfylgjandi eru afstöðumynd og teikningar unnar af Arnari Aðalsteinssyni.
Erindið er samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum enda uppfyllir framkvæmdin þau skilyrði sem sett eru fram í reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi á landi nr. 884/2017.
6.
Fokheldisúttekt - Aðalbraut 16, Árskógssandi