Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa

13. fundur
26. apríl 2022 kl. 13:00 - 16:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir starfsmaður
Vilhelm Anton Hallgrímsson starfsmaður
Ragnar Bjarnason
Starfsmenn
Bjarni Daníel Daníelsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir Skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Umsókn um byggingarleyfi - Öldugata 2
Málsnúmer 202204033
Tekin fyrir umsókn, dagsett 6. apríl 2022, um byggingarleyfi að Öldugötu 2 á Árskógssandi frá EGO húsum ehf. Óskað er eftir leyfi til þess að byggja þriggja íbúða raðhús á lóðinni. Meðfylgjandi eru aðalteikningar, byggingarlýsing og skráningartafla unnar af ArkiBygg arkitektum.
Þar sem umrædd lóð er á ódeiliskipulögðu svæði er umsókninni vísað í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynningin skal ná til eigenda eftirfarandi húseigna að: Ægisgötu 1, 3 og 5. Aðalbraut 2, 4, 6 og 8. Öldugötu 1, 3, 4, 5 og 7.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
2.
Umsókn um byggingarleyfi - Aðstöðuhús við Snerru
Málsnúmer 202204012
Með umsókn, dagsettri 4. apríl 2022, óskar Þröstur Karlsson eftir leyfi til þess að fá að byggja aðstöðuhús/vélageymslu við sumarhúsið Snerru í Svarfaðardal. Meðfylgjandi eru hönnunargögn unnin af Klöpp arkítektum.
Byggingaráform samþykkt og byggingafulltrúa falið að gefa út byggingaleyfi.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
3.
Umsókn um byggingarleyfi - Gróðurhús við Aðalgötu 1, Hauganesi
Málsnúmer 202203162
Með ódagsettri umsókn óskar Sólveig Hallgrímsdóttir eftir leyfi til þess að fá að reisa 25 fm plastgróðurhús í norðvesturhorni lóðar sinnar að Aðalgötu 1 á Hauganesi.
Erindi samþykkt með fyrirvara um samþykki nágranna í Aðalgötu 1a (Móland) um fjarlægð frá lóðamörkum.
Samþykkt samhljóða með tveimur atkvæðum.
4.
Umsókn um graftrarleyfi - Sakka III
Málsnúmer 202204110
Með umsókn, dagsettri 25. apríl 2022, óskar Sveinn Brynjólfsson eftir leyfi til þess að hefja jarðvegsvinnu á lóðinni að Sökku III í Svarfaðardal. Með umsókninni fylgdu teikningar að íbúðarhúsi og listi yfir byggingarstjóra og iðnmeistara.
Erindi samþykkt og byggingafulltrúa falið að gefa út graftarleyfi.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
5.
Beiðni um umsögn vegna umsóknar Í tröllahöndum ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II
Málsnúmer 202203173
Tekin fyrir beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra um umsögn byggingafulltrúa vegna umsóknar Í tröllahöndum ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II á Rimum í Svarfaðardal.
Byggingafulltrúi veitir jákvæða umsögn.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
6.
Tilkynning um framkvæmd - Gluggaskipti í Stórhólsvegi 1
Málsnúmer 202204107
Lögð fram tilkynning frá Jóni Arnari Helgasyni dagsett 25. apríl 2022, um fyrirhuguð gluggaskipti í Stórhólsvegi 1 á Dalvík. Gluggar verða að mestu óbreyttir en einnig á að koma fyrir svalahurð á suðurhlið hússins. Einnig á að fjarlægja skorstein.
Lagt fram til kynningar og engar athugasemdir gerðar.
7.
Tilkynning um framkvæmd - Syðri-Hagi
Málsnúmer 202204105
Lögð fram tilkynning frá Gittu Unn Ármannsdóttur, dagsett 24. apríl 2022, um fyrirhugaða framkvæmd að Syðri-Haga. Endurnýja á þak vegna rakaskemmda og setja þakglugga sem gert var ráð fyrir á upprunalegum teikningum.
Lagt fram til kynningar og engar athugasemdir gerðar.
8.
Umsókn um breytta notkun á rými 0204 á Böggvisstöðum.
Málsnúmer 202204109
Með umsókn, dagsettri 30. mars 2022, óskar Ella Vala Ármannsdóttir eftir breyttri skráningu á eign 0204 á Böggvisstöðum þannig að það verði skráð sem íbúð. Meðfylgjandi eru aðalteikningar og skráningartafla unnar af Kristjáni Hjartarsyni.
Erindi samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.