Afgreiðslufundur byggingafulltrúa
13. fundur
19. maí 2026
kl.
14:00
-
14:30
í fjarfundi
Nefndarmenn
Steinmar Heiðar Rögnvaldsson
byggingarfulltrúi
Starfsmenn
Ólafur Elvar Júlíusson
Verkefnastjóri byggingarmála
Katrín Rós Ívarsdóttir
Verkefnastjóri fasteignaskráningar
Fundargerð ritaði:
Katrín Rós Ívarsdóttir
Verkefnastjóri fasteignaskráningar
Dagskrá
1.
Klapparstígur 11 - Umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini
Erindi dagsett 22. apríl 2026 þar sem Guðjón Valberg Hilmarsson sækir um bílastæði og úrtak úr kantsteini við hús nr. 11 við Klapparstíg.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið skv. meðfylgjandi gögnum.
2.
Böggvisstaðir 1 - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 2
Erindi dagsett 10. mars 2026 þar sem Ella Vala Ármannsdóttir sækir um byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á húsi nr. 1 við Böggvisstaði ásamt því að skipta rými 0203 í tvær íbúðir. Innkomin gögn eftir Kristján Eldjárn Hjartarson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
3.
Bárugata 12 - umsókn um byggingu skjólveggs
Erindi dagsett 16.apríl 2026 þar sem Katrín Eva R. Guðmundsdóttir sækir um heimild til byggingar skjólveggs á lóðamörkum Bárugötu 12 við Brimnesbraut.Framkvæmdaráð samþykkir áformin með fyrirvara um jákvæða umsögn byggingarfulltrúa, lögreglu og framkvæmdasviðs Dalvíkurbyggðar.
Byggingarfulltrúi veitir jákvæða umsögn.