Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa

12. fundur
22. mars 2022 kl. 09:00 - 11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir starfsmaður
Vilhelm Anton Hallgrímsson starfsmaður
Ragnar Bjarnason
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Skógarhólar 11 - Yfirferð ESK
Málsnúmer 202203032
Farið yfir og samþykkt eignaskiptayfirlýsing fyrir Skógarhóla 11 a, b, og c unnin af Berki Þór Ottóssyni.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
2.
Tilkynning um framkvæmd - Svarfaðarbraut 12
Málsnúmer 202203116
Með tölvupósti, dagsettum 9. mars 2022, óskar Gunnar Njáll Gunnarsson eftir leyfi til þess að breyta útliti húss síns að Svarfaðarbraut 12 á Dalvík. Fyrirhugað er að minnka glugga á norður og austuhlið hússins, klæða útveggi norðurhluta og breyta þakkanti.
Fyrirhugaðar breytingar á gluggum eru samþykktar en óskað er eftir frekari gögnum varðandi klæðningu og breytingu á þakkanti.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
3.
Sandskeið 26 - Lokaúttekt
Málsnúmer 202004003
Lokaúttekt á geymsluskála Hitaveitu Dalvíkur að Sandskeiði 26 á Dalvík.
4.
Ægisgata 19a - Öryggisúttekt.
Málsnúmer 202007005
Öryggisúttekt á byggingu að Ægisgötu 19a á Árskógssandi.
5.
Ásasund - Öryggisúttekt.
Málsnúmer 202106159
Öryggisúttekt fór fram á byggingu að Ásasundi.