Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa

12. fundur
27. mars 2026 kl. 14:00 - 14:30
í fjarfundi
Nefndarmenn
Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
Ólafur Elvar Júlíusson Verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði:
Steinmar Heiðar Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Sandskeið - umsókn um stöðuleyfi fyrir gám
Málsnúmer 202510017
Erindi dagsett 3. október 2025 þar sem Már Kristinsson sækir um stöðuleyfi fyrir 20 ft. geymslugám á lóð við Sandskeið.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til eins árs.
2.
Ránarbraut 1 - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
Málsnúmer 202508131
Erindi dagsett 26. janúar 2026 þar sem Jens Karl Bernharðsson sækir um byggingarheimild fyrir hönd Fiskmarkaðs Norðurlands ehf. vegna breytinga á áður samþykktum uppdráttum á húsi nr. 1 við Ránarbraut. Innkomin gögn eftir Jens Karl Bernhaðsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
3.
Sánavagn við Sandskeið - umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 202602073
Erindi dagsett 12. febrúar 2026 þar sem Húni Húnfjörð sækir um stöðuleyfi fyrir sánavagni við Sandskeið.Meðfylgjandi er afstöðumynd
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til 1. maí 2027.