Afgreiðslufundur byggingafulltrúa
11. fundur
18. febrúar 2022
kl.
09:00
-
11:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir
starfsmaður
Vilhelm Anton Hallgrímsson
starfsmaður
Ragnar Bjarnason
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir
skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Skógarhólar 11 - uppfærðir aðaluppdrættir
Lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir fyrir Skógarhóla 11 á Dalvík.
2.
Umsókn um byggingarleyfi - Vélaskemma við golfvöll
Fyrir hönd Golfklúbbsins Hamars sækir Kristján Hjartarson um byggingarleyfi fyrir vélageymslu við golfvöll félagsins í Svarfaðardal. Lagðar fram aðalteikningar og skráningartafla unnar af Kristjáni Hjartarsyni byggingafræðingi.
Byggingaáform samþykkt samhljóða og byggingafulltrúa falið að gefa út byggingaleyfi þegar séruppdrættir hafa borist.
3.
Umsókn um byggingarleyfi - Geymsluhús í Efri Gullbringu
Tekin fyrir umsókn Ingólfs Árna Eldjárn um byggingarleyfi fyrir geymsluhúsi í Efri Gullbringu í Svarfaðardal. Lagðar fram teikningar og skráningartafla unnar af Kristjáni Hjartarsyni byggingafræðingi.
Byggingaáform samþykkt samhljóða og byggingafulltrúa falið að gefa út byggingaleyfi þegar séruppdrættir hafa borist.
4.
Böggvisstaðaskáli - niðurrif skv. starfs- og fjárhagsáætlun 2022
Tekin fyrir umsókn Bjarna Daníelssonar, sviðsstjóra framkvæmdasviðs Dalvíkurbyggðar, þar sem óskað er eftir leyfi til niðurrifs á Böggvisstöðum 2 (Böggvisstaðaskála).
Erindið samþykkt samhljóða.
5.
Bjarkarbraut 5 - Yfirferð og staðfesting eignaskiptayfirlýsingar
Erindi frestað.
6.
Gluggi milli Sigtúns og Ungó.
Tekið fyrir endurvakið erindi frá Gísla, Eiríki og Helga ehf. þar sem óskað er eftir leyfi til þess að láta saga glugga á milli Sigtúns (Kaffihús Bakkabræðra) og Ungó þannig að tæknirými bíósins verði sýnilegt gestum. Fyrir liggur samþykki sveitarstjórnar með fyrirvara um jákvæða umsögn slökkviliðsstjóra og byggingafulltrúa.
Byggingafulltrúi og slökkviliðsstjóri gera ekki athugasemdir við framkvæmdina sé farið að leiðbeiningum slökkviliðsstjóra. Samþykkt samhljóða.
7.
Svalbarði í Svarfaðardal - Fokheldisúttekt
Fokheldisúttekt á Svalbarða í Svarfaðardal.