Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa

10. fundur
21. desember 2021 kl. 09:00 - 11:30
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir starfsmaður
Vilhelm Anton Hallgrímsson starfsmaður
Ragnar Bjarnason
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir Skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Umsagnarbeiðni vegna Baccalá bar frá SA339 ehf
Málsnúmer 202112036
Tekin fyrir ósk frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra um umsögn vegna rekstrarleyfis fyrir SA339 ehf á Baccalá bar, Aðalgötu 2 á Hauganesi.
Byggingafulltrúi veitir jákvæða umsögn vegna rekstrarleyfisins.
2.
Breytt notkun húsnæðis - Ásvegur 3
Málsnúmer 202112084
Tekin fyrir fyrirspurn frá Heiðdísi Gunnarsdóttur vegna leyfis fyrir aðstöðu til hundasnyrtingar í bílskúr í Ásvegi 3 á Dalvík.
Byggingafulltrúi gerir ekki athugasemd við þessa breyttu notkun húsnæðisins í því umfangi sem henni er lýst.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
3.
Ægisgata 19a - Úttekt
Málsnúmer 202007005
Úttekt á framkvæmdum við Ægisgötu 19a á Árskógssandi. Samþykkt að skrá bygginguna á byggingarstig 4.
4.
Ægisgata 1, Árskógssandi - Úttekt
Málsnúmer 202104029
Úttekt á framkvæmdum við Ægisgötu 1 á Árskógssandi. Samþykkt að skrá bygginguna á byggingarstig 4.
5.
Hringtún 11 - Lokaúttekt
Málsnúmer 201810076
Lokaúttekt á íbúðinni að Hringtúni 11b á Dalvík. Samþykkt að skrá bygginguna á byggingarstig 7.
6.
Hólshús - lokaúttekt
Málsnúmer 202006060
Lokaúttekt á frístundahúsinu Hólshús í landi Skáldalækjar Ytri. Samþykkt að skrá bygginguna á byggingarstig 7.