Afgreiðslufundur byggingafulltrúa
1. fundur
30. janúar 2025
kl.
11:00
-
11:30
í fjarfundi
Nefndarmenn
Steinmar Heiðar Rögnvaldsson
byggingarfulltrúi
Starfsmenn
Ólafur Elvar Júlíusson
Verkefnastjóri byggingarmála
Katrín Rós Ívarsdóttir
Verkefnastjóri fasteignaskráningar
Fundargerð ritaði:
Katrín Rós Ívarsdóttir
Verkefnastjóri fasteignaskráningar
Dagskrá
1.
Stórhólstjörn - Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám
Erindi dagsett 9.janúar 2025 þar sem Freyr Antonsson sækir um stöðuleyfi fyrir gám á stíg sem liggur að dæluhúsi við Stórhólstjörn. Ætlunin er að nýta umræddan gám til geymslu á skautabúnaði fyrir almenning. Meðfylgjandi er afstöðumynd. Skipulagsráð samþykkir erindið á fundi 15. janúar 2025 og vísar afgreiðslu þess til byggingarfulltrúa.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til eins árs.