Endurvinnslustöð Dalvíkurbyggðar er staðsett við Sandskeið. Rekstur Endurvinnslustöðvarinnar er í höndum Gámaþjónustunnar.
Opnunartími gámasvæðisins er eftirfarandi:
• Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl. 15:00 - 18:00
• Laugardaga frá kl. 11:00 - 14:00
• Lokað er á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum
Hvenær eru tunnur losaðar í mínu hverfi?
Allar upplýsingar um losun má finna í sorphirðudagatali Dalvíkurbyggðar.
Hvar get ég nálgast klippikort á gámasvæði og hvernig er það notað?
Allir greiðendur sorphirðugjalda fyrir heimili og sumarbústaði, geta nálgast klippikort í þjónustuveri Dalvíkurbyggðar. Klippikort fyrra árs er gjaldgengt þar til það klárast.
Með sorphirðugjöldunum fylgir eitt klippikort á ári hverri fasteign. Ef kortið klárast inna árs er hægt að kaupa nýtt kort í þjónustuveri skrifstofu Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsinu á Dalvík.