Fara í efni

Ljóðaupplestur á bókasafninu – Ragnheiður Harpa, Melkorka og Védís Eva

Dags
4. desember
Kl.
17:00 - 19:00
Staðsetning
Menningarhúsið Berg
Við bjóðum ykkur til notalegs ljóðaupplestrar á Bókasafni Dalvíkurbyggðar föstudaginn 4. desember kl. 17.00.
Deildu

Þrjú ljóðskáld að sunnan koma í heimsókn og lesa upp úr nýútgefnum verkum sínum en þær hafa allar vakið mikla athygli í jólabókaflóði ársins. Skáldin sem fram koma eru:

• Védís Eva Guðmundsdóttir sem les upp úr Brotnum línum,
• Melkorka Ólafsdóttir sem  les upp úr Hverfu,
• Ragnheiður Harpa Leifsdóttir sem les upp úr Deig en hún er jafnframt handhafi bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar 2026.

Höfundar bjóða áritaðar bækur á tilboðskjörum á staðnum eftir upplestur. Væri ekki tilvalið að eiga notalega stund og jafnvel klára jólagjafirnar í upphafi aðventunnar?

Þessi viðburður er styrktur af Skáld Akureyri Curio Collection og með framlagi úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar.