Hjóla og gönguleiðir
Í Dalvíkurbyggð er fjöldinn allur af fallegum göngu- og hjólaleiðum sem henta fólki á öllum getustigum. Hvort sem þú vilt njóta rólegs göngutúrs um Dalvík, fara í fallega göngu um Svarfaðardal eða takast á við meira krefjandi fjallgöngu á Tröllaskaga – þá eru valkostirnir fjölmargir. Einnig er svæðið tilvalið fyrir hjólreiðar, bæði innanbæjar og á fjölbreyttum leiðum í stórbrotinni náttúru svæðisins.

Útivist
Dalvíkurbyggð er á Tröllaskaganum, einu mikilfenglegasta fjalllendi Íslands. Skaginn er fjöllóttur og ná margir fjallatindar yfir 1200m yfir sjávarmál og nokkrir yfir 1400m. Hæst er Kerling í Svarfaðardal (1214m). Fjölmargir smájöklar eru í fjöllum og dölum Tröllaskagans en þeirra stærstir eru Gljúfurárjökull og Tungnahryggsjökull. Djúpir dalir skerast inn í fjallendi Tröllaskagans en þeir eru mótar af greftri vatnsfalla og svörfun skriðjökla á jökulskeiðum ísaldar.
Útivistarmöguleikar á Tröllaskaganum eru gríðarmiklir og má þar helst nefna gönguferðir, þyrluskíðun, fjallaskíðamennsku og skíðamennsku. Skaginn er einnig ríkur af öðrum náttúruauðlindum svo sem fjölskrúðugu fugla og plöntulífi og jarðminjum ýmiskonar, auk þess sem Eyjafjörðurinn er kjörlendi hvalaskoðunar
Í Dalvíkurbyggð eru ýmis útivistarsvæði sem íbúar og gestir svæðisins geta nýtt sér.
Gönguleiðir eru fjölmargar í sveitarfélaginu. Tröllaskaginn allur er einn stærsta samfellda fjallasvæði landsins sem sérstöðu sinnar vegna er allt á náttúruminjaskrá. Hér eru há fjöll, og fjallaskörð sem hafa verið mótuð af jöklum í gegnum aldirnar og skilið eftir sig hrikaleg fjöll, grösuga fallega dali, aragrúa smájökla, jökulminjar, einstök fjallavötn og fegurð þar sem kyrrð, orka og töfrar láta engan ósnortinn. Tröllaskagi er þannig óþrjótandi auðlind fyrir þá sem vilja njóta ánægju og útiveru í þessu hrikalega en fjölbreytta landslagi allt árið um kring. Eitt af því sem gerir svæðið áhugavert er að auðvelt er að fá tilfinningu fyrir því að maður sé einn í óbyggðum þar sem engin mannshönd hefur komið nærri.
Fjöllin á Tröllaskaga geyma hæstu fjöll Norðurlands. Á utanverðum Tröllaskaga má nefna Dýjafjallshnjúk 1445 m, Kvarnársdalshnjúk 1424m og Heiðingja 1402m. Meðalhæð fjalla er um 930m eða 3000ft. Svæðið er því kjörlendi fyrir göngufólk og má finna gönguleiðir fyrir alla, hvort sem menn vilja ganga á láglendi um Friðland Svarfdæla, klífa fjöll eða fornar þjóðleiðir á milli byggðarlaga. Háskólinn á Hólum hefur gefið út mjög góð göngukort yfir fjölmargar gönguleiðir á Tröllaskaga og er hægt að kaupa þau í upplýsingamiðstöðvum á svæðinu. Einnig eru margar stikaðar leiðir á Tröllaskaga og einfaldari kort er hægt að fá hjá upplýsingamiðstöðum fyrir þá sem kjósa frekar styttri gönguleiðir.
