
Útivist og umhverfi
Dalvíkurbyggð er umlukin stórbrotinni náttúru á Tröllaskaga þar sem fjöll, dalir og sjór skapa einstaka umgjörð fyrir útivist. Í Svarfaðardal eru fjölmargar göngu- og hjólaleiðir auk Friðlands Svarfdæla sem er vinsælt svæði fyrir fuglaskoðun og rólegar gönguferðir. Stutt er í Böggvisstaðafjall þar sem bæði er hægt að njóta stórkostlegs útsýnis yfir Eyjafjörð og stunda skíði yfir vetrartímann.