Hafnasjóður Dalvíkurbyggðar: hafnavörður
Hafnasjóður Dalvíkurbyggðar óskar eftir að ráða hafnavörð í 100% starfshlutfall en um framtíðarstarf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. október 2026. Hafnavörður er með daglega umsjón með höfnum sveitarfélagsins.
Helstu verkefni
- Dagleg umsjón, eftirlit og viðhald á hafnabakka og hafnarmannvirkjum.
- Daglegt eftirlit með skipum, móttaka þeirra, skráning og afgreiðsla.
- Vigtun afla og skráning í gagnagrunn Fiskistofu.
- Leiðsögn og öryggiseftirlit við hafnir.
- Raðar skipum í höfn og bindir við bryggju.
- Skráning upplýsinga til gjaldtöku af skipum og vörum skv. gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.
- Afgreiðir vatn og rafmagn til skipa.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gerð er krafa um starfs- og/eða stjórnunarreynslu sem nýtist í starfi.
- Gerð er krafa um góða tölvukunnáttu, þekking í Business Central er kostur.
- Verkkunnátta við stjórnun viðeigandi véla og tækjabúnaðar.
- Gerð er krafa um bílpróf.
- Gott val á íslensku í ræðu og riti.
- Iðnmenntun er kostur.
- Góð samstarfs- og samskiptahæfni.
- Rík þjónustulund og jákvæðni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skipulagshæfni og nákvæmni.
Næsti yfirmaður er yfirhafnavörður Dalvíkurbyggðar.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Sótt er um starfið á umsóknarvef Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal fylgja afrit af ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið, stutt persónuleg kynning ásamt nöfnum umsagnaraðila. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar um starfið veitir sveitarstjóri eis@dalvikurbyggd.is
Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar launafulltrui@dalvikurbyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 9. september 2026.