Fara í efni
24.07.2026

Verslunarmannahelgin – sameiginleg ábyrgð foreldra

Deildu

Bréf til foreldra/forsjáraðila nemenda í verðandi 9. og 10. bekk og ungmenni undir 18 ára í framhaldsskólum.

Kæru foreldrar og forsjáraðilar,
Framundan er verslunarmannahelgin og fjölskylduhátíðin Ein með öllu sem verður haldin á Akureyri. Gera má ráð fyrir auknum fjölda ungmenna á Akureyri og ljóst er að mörg ungmenni úr Dalvíkurbyggð hyggjast sækja hátíðina. Samkomur af þessu tagi hafa að sjálfsögðu mikið skemmtanagildi, en af fyrri reynslu er ljóst að slíkar helgar geta falið í sér aukna áhættu, m.a. vegna hópamyndunar og neyslu áfengis ef eftirlits- og aðgæsluhlutverki foreldra er ekki sinnt sem skyldi.

Við viljum því leggja áherslu á mikilvægi þess að foreldrar taki virkan þátt í að tryggja öryggi og velferð ungmenna. Foreldraábyrgð nær til 18 ára aldurs og skiptir sköpum í forvarnarstarfi.
Reynslan sýnir að áhrifaríkustu verndandi þættirnir eru að:

  • foreldrar viti hvar ungmenni þeirra eru og með hverjum 
  • foreldrar setji skýr mörk og fylgi þeim eftir 
  • foreldrar hafi virkt samtal og samráð sín á milli 

Við hvetjum ykkur foreldra sérstaklega til að:

  • ræða fyrirfram við ungmennið um áform helgarinnar
  • samræma viðmið við aðra foreldra
  • leyfa ekki eftirlitslaus samkvæmi
  • fylgjast með ferðum og tryggja örugga heimkomu
  • vera til staðar og aðgengileg ef á þarf að halda

Mikilvægt er að hafa í huga að bæjarhátíðir eru ekki ætlaðar eftirlitslausum unglingum. 
Akureyrarbær mun, í samstarfi við viðbragðsaðila og viðburðarhaldara, tryggja sýnilega nærveru á vettvangi með flakkandi félagsmiðstöð. Starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar Dallas verða á Akureyri yfir verslunarmannahelgina og verða sýnilegir á hátíðarsvæðinu. Ungmenni geta leitað til þeirra ef eitthvað kemur upp á eða þau þurfa á aðstoð að halda. Sú vinna er þó aðeins hluti af heildinni því þátttaka foreldra er lykilforsenda þess að vel takist til. Verði barn undir lögaldri fundið ölvað er það skylda fagaðila að tilkynna slíkt til barnaverndar.

Með samstilltu átaki getum við stuðlað að öruggri og jákvæðri verslunarmannahelgi með ungmennum.