Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í endurnýjun á Böggvisbraut suður. Verkið felst í endurnýjun á syðstu 220 metrum Böggvisbrautar, frá Mímisvegi og suður úr. Á þessum kafla á að endurnýja núverandi fráveitulagnir, tvöfalda fráveitukerfið og tengja fráveitukerfinu. Í verkinu felst líka endurnýjun á 30 cm burðar- og jöfnunarlagi götunnar og endurnýjun á malbikuðu yfirborði auk endurnýjunar á gangstétt og kantsteini austan götu.
Helstu magntölur:
Gatnagerð
- Upprif á malbiki - 2.450m2
- Upprif á kantsteini - 210m
- Gröftur - 600m3
- Fylling - 600m3
- Malbik - 2.450m2
- Nýr kantsteinn - 210m
Fráveita
- Fráveitulagnir - 560m
- Brunnar - 11 stk.
- Ný niðurföll - 8 stk.
- Fjarlægja eldri lagnir - 295 m
- Gröftur - 1.720m3
- Fylling og söndun að lögnum - 1.365m3
Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2026.
Útboðsgögn verða send þeim sem vilja eftir að beiðni þess efnis berst á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is
Fyrirspurnartíma lýkur 20. júlí 2026 og rennur svarfrestur fyrirspurna út 22. júlí 2026.
Tilboðum skal skila fyrir kl. 14:00 mánudaginn 27. júlí 2026 á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is eða á pappír á skrifstofur Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsinu á Dalvík.
