Vegna tæknilegra vandkvæða hafa orðið truflanir á birtingu reikninga frá Dalvíkurbyggð á island.is. Unnið hefur verið að lagfæringu og hefur vandamálið nú verið leyst.
Í kjölfar lagfæringarinnar kann að koma fyrir að eldri reikningar birtist á island.is. Viðtakendur eru því beðnir um að hafa þetta í huga þegar farið er yfir reikninga þar.
Dalvíkurbyggð biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
