Fara í efni
21.09.2026

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra opinn fyrir umsóknir

Deildu

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra og er umsóknarfrestur til 21. október kl. 14:00. Sjóðurinn er mikilvægur vettvangur fyrir einstaklinga, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög sem vilja hrinda nýjum hugmyndum í framkvæmd og stuðla að þróun og uppbyggingu í landshlutanum.

Veittir eru styrkir í þremur flokkum:

Verkefnastyrkir á sviði atvinnulífs
Verkefnastyrkir á sviði blómlegra byggða
Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar

Markmið Uppbyggingarsjóðs er að styrkja verkefni sem falla að áherslum Sóknaráætlunar Norðurlands eystra og stuðla að atvinnuþróun, nýsköpun, samfélagslegri uppbyggingu og öflugu menningarlífi.

Íbúar, fyrirtæki og félagasamtök í Dalvíkurbyggð eru hvött til að kynna sér styrkmöguleikana vel og skoða hvort verkefni þeirra gætu átt erindi í sjóðinn. Starfsfólk SSNE veitir jafnframt ráðgjöf við undirbúning umsókna og hægt er að bóka viðtal/fund hjá SSNE. 

Sótt er um í rafrænni umsóknargátt og má finna nánari upplýsingar, úthlutunarreglur, matsblöð og leiðbeiningar á heimasíðu SSNE.

Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð
Frétt frá SSNE um opnun umsóknarfrests

Við hvetjum öll áhugasöm í Dalvíkurbyggð til að nýta þetta tækifæri og sækja um styrki til verkefna sem geta eflt samfélagið, atvinnulífið og menningarlíf svæðisins.