Tímabundnar lokanir og hjáleiðir vegna framkvæmda í Böggvisbraut.
Vegna vinnu sem er að hefjast við endurnýjun Böggvisbrautar frá Mímisvegi og suður að Böggvisbraut 19 eru að fara í gang tímabundnar lokanir og hjáleiðir sem verða í gildi næstu daga.
Lokað verður fyrir alla umferð efst í Mímisvegi, við Böggvisbraut, líklega fram á fimmtudag.
Umferð um Böggvisbraut sunnan Mímisvegar og að Skógarhólum verður háð takmörkunum næstu daga og mun götunni verða lokað tímabundið meðan vinna stendur yfir.
Búið er að opna tímabundna hjáleið inn í Hóla-hverfið frá Brekkuselsvegi ofan Lynghóla. Hægt verður að komast að þeirri hjáleið úr Böggvisbraut norðan Mímisvegar.
Einnig er hægt að komast til og frá hverfinu um Böggvisstaðaafleggjara/Snorrabraut.
Dalvíkurbyggð hvetur íbúa til að fara varlega og sýna aðgát.
Einnig eru börn í Hóla-hverfi og syðri hluta Böggvisbrautar hvött til þess að nota stíginn við Sundlaugina til þess að fara í og úr skóla næstu daga

