Dalvíkurbyggð vill vekja athygli á að vegna tæknilegrar villu í innheimtukerfi hitaveitu mynduðust ekki reikningar fyrir ákveðinn hóp notenda í tveimur síðustu reikningagerðum.
Villa þessi hefur nú verið leiðrétt og því hafa viðkomandi notendur fengið reikning sem nær yfir lengra tímabil en venjulega, eða frá 1. mars til 31. ágúst 2026. Af þeim sökum geta reikningarnir verið hærri en notendur eiga að venjast.
Um er að ræða rukkun fyrir raunverulega notkun á tímabilinu en ekki ofrukkun.
Dalvíkurbyggð biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið. Þeir sem hafa spurningar eða óska eftir frekari upplýsingum eru hvattir til að hafa samband við skrifstofu Dalvíkurbyggðar í síma: 460 4900 eða á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is
