Mögulegar umferðartafir í Múlagöngum miðvikudaginn 18. nóvember
Vegagerðin mun miðvikudaginn 18. nóvember gera prófanir á virkni nýrra hurða í Múlagöngum.
Vegna prófananna gætu orðið einhverjar tafir á umferð um göngin á milli kl. 10:00 og 14:00.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát, þolinmæði og skilning á meðan prófanir standa yfir.
