Fara í efni
24.06.2026

Sumarleyfi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar sumarið 2026

Deildu

Á fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 23. júní 2026 var samþykkt samhljóða tillaga um sumarleyfi sveitarstjórnar, í samræmi við 8. gr. samþykktar um stjórn sveitarfélagsins.

Samkvæmt ákvörðuninni verða reglulegir fundir sveitarstjórnar felldir niður í júlí og ágúst nk.
Jafnframt var byggðaráði falin fullnaðarafgreiðsla þeirra mála sem það telur nauðsynlegt að afgreiða á tímabilinu, frá og með 24. júní til og með 31. ágúst 2026, í samræmi við 32. gr. V. kafla samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar.

Með þessari tilhögun er tryggt að afgreiðsla brýnna mála haldist óskert yfir sumarmánuðina þrátt fyrir fundahlé sveitarstjórnar.