Fara í efni
18.11.2026

Sterkur rekstur gefur okkur svigrúm til að sækja fram

Deildu

Sterkur rekstur gefur okkur svigrúm til að sækja fram

Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun áranna 2028–2030 var samþykkt við síðari umræðu í sveitarstjórn þann 17. nóvember sl., með fimm atkvæðum gegn tveimur, ásamt þjónustustefnu sveitarfélagsins. Heildarmynd fjárhagsáætlunarinnar er góð. Reksturinn er sterkur, afkoman batnar og við höfum svigrúm til áframhaldandi uppbyggingar. Um leið er fjárfestingaáætlunin metnaðarfull og því þurfum við áfram að sýna ábyrgð, forgangsraða og halda vel á spöðunum.

Þegar ég horfi á fjárhagsáætlunina í heild finnst mér við mega vera ánægð með stöðu Dalvíkurbyggðar.
Heildartekjur A- og B-hluta eru áætlaðar tæpir 4,4 milljarðar króna árið 2027 og gert er ráð fyrir um 384 milljóna króna rekstrarafgangi. Til samanburðar er útkomuspá ársins 2026 um 155 milljóna króna afgangur.

Það sem mér finnst þó einna mikilvægast er hversu mikið fjármagn reksturinn sjálfur skapar. Handbært fé frá rekstri er áætlað tæpar 747 milljónir króna árið 2027 og gerir það okkur kleift að standa undir verulegum hluta fyrirhugaðra fjárfestinga með eigin rekstri.
Fjárfestingar ársins 2027 eru áætlaðar rúmlega 1.029 milljónir króna og samtals er gert ráð fyrir um 3,3 milljörðum króna í fjárfestingar á árunum 2027–2030. Ný lántaka er áætluð 195 milljónir króna árið 2027 og 305 milljónir árið 2028 en ekki er gert ráð fyrir nýjum langtímalánum árin 2029 og 2030.
Við höfum því svigrúm til að sækja fram, en við þurfum að gera það af skynsemi. Umfang fjárfestinganna kallar á góða verkefnastýringu, skýra forgangsröðun og náið eftirlit með kostnaði og skuldastöðu.

Eitt þeirra verkefna sem við þurfum sérstaklega að horfa til á næstu árum er rekstur Vatnsveitunnar. Þar þarf að vinna áfram með rekstrarforsendur, fjárfestingarþörf, fjármagnskostnað og gjaldskrá með sjálfbæran rekstur að markmiði.
Í allri umræðu um fjárfestingar finnst mér síðan mikilvægt að minna á að sveitarfélagið er fyrst og fremst þjónustufyrirtæki. Árangur okkar mælist ekki aðeins í þeim framkvæmdum sem sjást, heldur ekki síður í þeirri þjónustu sem íbúarnir fá á hverjum degi.
Sterkur fjárhagur er því ekki markmið í sjálfu sér. Hann er forsenda þess að við getum veitt góða þjónustu, viðhaldið innviðum okkar og haldið áfram að byggja upp gott samfélag.
Ég vil að lokum þakka stjórnendum, starfsfólki og kjörnum fulltrúum fyrir mikla vinnu við gerð fjárhagsáætlunarinnar.
Að baki öllum tölunum og áætlununum er sameiginlegt verkefni okkar: að reka öflugt sveitarfélag sem veitir íbúum sínum góða þjónustu og hefur burði til að byggja samfélagið áfram upp til framtíðar.

Framsögu mína við síðari umræðu fjárhagsáætlunarinnar má nálgast hér að neðan ásamt fjárhagsgögnum Dalvíkurbyggðar fyrir árin 2027–2030.

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, 
sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar