Miðvikudaginn 11. febrúar n.k. verður opinn fundur með verktökum í menningarhúsinu Bergi kl. 17:00
Á fundinum verður farið yfir helstu framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins á árinu 2026, fyrirkomulag verðfyrirspurna og útboða auk þess sem farið verður yfir stöðu skipulagsmála í Dalvíkurbyggð.
Fundurinn er öllum opinn. Hlökkum til þess að sjá þig á fundinum.
05.02.2026
Opinn fundur með verktökum
