Hvað er opinn efniviður?
Opinn efniviður eru leikföng og hlutir sem hafa ekki eitt ákveðið hlutverk eða eina rétta leið til að nota þá. Þetta geta verið viðarkubbar, steinar, efnisbútar, könglar og ýmis byggingarefni. Ólíkt leikföngum sem hafa fyrirfram ákveðinn tilgang gefur opinn efniviður börnunum frelsi til að ákveða sjálf hvað þau vilja skapa. Sami kubburinn getur verið bíll einn daginn, brú þann næsta og hluti af stórum kastala daginn þar á eftir.
Þegar börn gleyma sér
Þegar börn leika sér með opinn efnivið fá þau tækifæri til að þroska margvíslega færni án þess að upplifa að þau séu í skipulögðu námi. Rannsóknir sýna að leikur er mikilvægur þáttur í námi og þroska barna og að sjálfsprottinn leikur getur stutt við sköpunargáfu, ímyndunarafl, einbeitingu, félagsfærni og lausnaleit, þar sem börnin fá tækifæri til að prófa eigin hugmyndir, þróa þær áfram og uppgötva endalausa möguleika.
Í sameiginlegum leik læra börnin einnig að vinna saman, hlusta á hugmyndir annarra, semja um hlutverk og leysa ágreining. Leikur af þessu tagi getur auk þess stutt við málþroska, fínhreyfingar og skilning á stærðfræði og eðlisfræði, til dæmis jafnvægi, stærðum og formum.
Eitt af því sem við viljum sérstaklega styðja við er djúpur leikur og flæði. Flæði er þegar barn verður svo niðursokkið í áhugavert verkefni að það gleymir sér í því sem það er að gera. Hugmyndirnar þróast, einbeitingin eykst og barnið nýtur þess að skapa og uppgötva. Slíkur leikur getur stutt við sjálfstæði, þrautseigju og trú barnsins á eigin getu. Barnið fær að upplifa: „Ég fékk hugmynd, prófaði hana og fann mína eigin lausn.
Börnin skapa leikinn
Með aukinni áherslu á opinn efnivið viljum við í Krílakoti skapa fjölbreytt og hvetjandi leikumhverfi þar sem hugmyndir barnanna fá að njóta sín. Hlutverk starfsfólksins er að bjóða upp á áhugaverðan efnivið, fylgjast með leiknum, styðja börnin þegar þörf er á og gefa þeim tíma og svigrúm til að þróa eigin hugmyndir. Þegar við gefum börnum frelsi til að skapa sinn eigin leikheim erum við um leið að styðja þau í að verða sjálfstæðir, skapandi og lausnamiðaðir einstaklingar.






Heimild
Cankaya, O., Martin, M. og Haugen, D. (2025). The relationship between children’s indoor loose parts play and cognitive development: A systematic review. Journal of Intelligence, 13(5), 52. https://doi.org/10.3390/jintelligence13050052
