Fara í efni
23.07.2026

Nýtt deiliskipulag fyrir hesthúsasvæði í Hringsholti Auglýsing skipulagstillögu

Deildu

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt að auglýsa tillögu fyrir nýtt deiliskipulag hesthúsasvæðis í Hringsholti skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

Deiliskipulagið er unnið í samstarfi við Hestamannafélagið Hring og miðar að framtíðaruppbyggingu á svæðinu. Meðal þess sem skilgreint er í deiliskipulaginu eru lóð og skilmálar fyrir nýja reiðhöll, lóðir og skilmálar fyrir ný hesthús, bílastæði og geymslusvæði, auk reiðstíga innan svæðis og tenginga við aðliggjandi svæði.

Deiliskipulagsgögn má nálgast hér:

Gögnin má einnig nálgast í afgreiðslu á 1.hæð í ráðhúsi Dalvíkur og á Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is undir máli nr. 1575/2025, frá 23.júlí til 6.september 2026.

Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér tillöguna og senda inn athugasemdir, annað hvort með tölvupósti á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til framkvæmdasviðs í Ráðhúsi Dalvíkur eða í gegnum Skipulagsgátt. 

Frestur til að senda inn ábendingar er til 6.september 2026.