Fara í efni
26.06.2026

Nýtt Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045 Tillaga í auglýsingu og íbúafundur

Deildu

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar auglýsir nú tillögu að nýju Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045 skv. 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

Um er að ræða heildarendurskoðun á gildandi aðalskipulagi. Í aðalskipulaginu er sett fram stefna um um landnotkun og framtíðarsýn sveitarfélagsins sem ætlað er að stuðla að hagkvæmri þróun byggðar, m.a. með því að skapa sem best skilyrði fyrir atvinnulíf og gera búsetu á svæðinu eftirsóknarverða. 
Samhliða auglýsingu aðalskipulags eru auglýstar athugasemdir Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar við skipulagstillöguna, dags. 1.júní 2026 og viðbrögð Dalvíkurbyggðar við þeim.
Eftirtalin skipulagsgögn verða í auglýsingu frá 26.júní til 16.ágúst nk.:

Gögnin má jafnframt nálgast í afgreiðslu á 1.hæð í ráðhúsi Dalvíkurbyggðar og á skipulagsgátt, skipulagsgatt.is undir máli nr. 1264/2024. https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1264
Athugasemdum þar sem nafn, kennitala og heimilisfang kemur fram má skila á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til Framkvæmdasviðs, Ráðhúsi, 
620 Dalvík eða í gegnum Skipulagsgátt. 

Frestur til að koma á framfæri athugasemdum við skipulagstillöguna er veittur til 16.ágúst 2026. 

Íbúafundur verður haldinn í Bergi menningarhúsi þriðjudaginn 30.júní nk. þar sem skipulagstillagan verður kynnt og þátttakendum gefinn kostur á að taka þátt í fyrirspurnum og umræðum. Fundurinn hefst klukkan 16:30. 
Við hvetjum öll áhugasöm til að mæta og kynna sér stefnumótun Dalvíkurbyggðar til framtíðar. 

Hlökkum til að sjá ykkur. 

Skipulagsfulltrúi