Dalvíkurbyggð hefur nú opnað nýja og endurbætta heimasíðu sem er ætlað að bæta aðgengi íbúa og annarra að upplýsingum um starfsemi sveitarfélagsins. Vefurinn var hannaður og þróaður af Stefnu ehf. í góðu samstarfi við starfsmenn sveitarfélagsins.
Við vinnuna var lögð sérstök áhersla á skýra framsetningu, aðgengi og einfaldleika, þannig að íbúar geti auðveldlega fundið þær upplýsingar sem þeir þurfa hverju sinni. Nýja síðan er jafnframt aðlöguð mismunandi tækjum, svo notendur geti nýtt hana bæði í tölvu, spjaldtölvu og síma.
Samhliða opnun nýrrar heimasíðu hefur byggðarmerki Dalvíkurbyggðar verið uppfært. Nýja merkið var hannað af hönnunarstofunni Kríu og endurspeglar með nútímalegum hætti sérstöðu sveitarfélagsins og sterka tengingu við samfélag, náttúru og sögu svæðisins. Merkið hefur nú þegar verið auglýst opinberlega og tekið í notkun.

Með þessum breytingum stígur Dalvíkurbyggð mikilvægt skref í áframhaldandi þróun á upplýsingamiðlun og þjónustu við íbúa og gesti.
