Nýverið var leiksvæðið á Hauganesi lagað og sett þar ný leiktæki sem miða að yngstu notendunum.
Ungbarnaróla var sett upp, ásamt kastala og gorma vegasalti.
Einnig var settur nýr ærslabelgur og svæðið í kringum hann lagað.
Við erum virkilega ánægð með það hvernig til tókst og það verður gaman að sjá leiksvæðið iða af lífi.



