
Nýverið lauk endurbótum á stígum og aðgengi í Láginni á Dalvík, verkefni sem hefur staðið yfir á síðasta ári. Markmið framkvæmdanna var að bæta aðgengi að svæðinu og gera það enn notalegra fyrir íbúa og gesti að njóta útivistar í þessu vinsæla útivistarsvæði.
Í framkvæmdunum voru stígarnir hellulagðir og tengingar milli stíga endurbættar þannig að þær eru nú aflíðandi og aðgengilegri fyrir alla. Jafnframt var stígatenging að vestanverðu færð þannig að hún liggur nú beint frá bílastæðinu við Dalbæ og auðveldar þar með aðkomu að svæðinu.
Samhliða stígaframkvæmdunum var komið fyrir lágstemmdri lýsingu meðfram stígunum og hluti gróðurs á svæðinu endurnýjaður. Þá voru sett upp tvö æfingatæki í suðvesturhluta Lágarinnar sem valin voru í samráði við starfsfólk Dalbæjar. Tækin eru ætlað að styðja við hreyfingu og þjálfun, meðal annars með æfingum sem styrkja fótleggi, axlir og brjóstvöðva.
Verktakafyrirtækið EB ehf. sá um framkvæmdina.
Verkefnið hlaut styrk frá innviðaráðuneytinu þar sem það fellur vel að markmiðum um aukið aðgengi allra að opnum og sameiginlegum útivistarsvæðum.
Lágin er einstakur samveru- og útivistarstaður fyrir fólk á öllum aldri og eru íbúar hvattir til að líta við, ganga nýju stígana og kynna sér þær umbætur sem gerðar hafa verið á svæðinu.
