Viltu verða hluti af öflugu og metnaðarfullu skólasamfélagi?
Leikskólinn Krílakot í Dalvíkurbyggð vill ráða tvo leikskólakennara til frambúðar í 100% störf, með æskilegri ráðningu sem fyrst. Á Krílakoti leggjum við áherslu á hlýlegt og metnaðarfullt leikskólastarf þar sem leikur, sköpun, hreyfing og útivera skipa stóran sess. Við viljum skapa umhverfi þar sem börnin fá að njóta sín á eigin forsendum og starfsfólk tekur virkan þátt í fjölbreyttu og lifandi leikskólastarfi. Starfsauglýsing gefur frekari upplýsingar um helstu verkefni og hæfniskröfur.
