Fara í efni
18.06.2026

Íslandsmeistaramót í götuhjólreiðum í Svarfaðardal laugardaginn 20. júní

Deildu

Laugardaginn 20. júní næstkomandi fer fram Íslandsmeistaramót í götuhjólreiðum í Svarfaðardal á vegum Hjólreiðafélags Akureyrar.

Keppni stendur yfir á milli kl. 10:00 og 14:00 og verður hjólað í 23,6 km keppnishring um dalinn.

Af því tilefni vill Dalvíkurbyggð vekja athygli vegfarenda á að búast má við aukinni umferð

 hjólreiðafólks á svæðinu meðan á keppni stendur. Mikilvægt er að ökumenn og aðrir vegfarendur:

  • fari varlega,
  • sýni keppendum sérstaka aðgát,
  • og taki fullt tillit til aðstæðna á leiðinni.

Með samstilltu átaki getum við tryggt að mótið fari fram á öruggan og ánægjulegan hátt fyrir alla.

Nánari upplýsingar um mótið má finna hjá mótshöldurum á vef Hjólreiðafélags Akureyrar.