Fara í efni
24.09.2026

Húnaferð 6. bekkjar

Deildu

Undanfarin ár hefur nemendum 6. bekkjar boðist einstakt tækifæri til að upplifa sjómennsku af eigin raun, sjá hvernig það er að ferðast á sjó og veiða og fræðast um fisk og sjávarútveg með eikarbátnum Húna II. Þessi ferð, sem nefnist Frá öngli í maga, er samstarfsverkefni Hollvina Húna II, Akureyrarbæjar, Samherja og auðlindadeildar Háskólans á Akureyri. 

Á meðan á siglingunni stendur fá nemendurnir að kynnast skipinu, fræðast um sögu þess og læra ýmislegt um störf og líf sjómanna ásamt því að veiða. Einnig er um borð sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri sem slægir fiskinn og flakar fyrir framan krakkana og útskýrir fyrir þeim á meðan. Að lokum er svo aflinn grillaður um borð. 

Húni II hefur í gegnum tíðina verið mikilvægur hluti af sjávarútvegssögu og menningu landsins. Fyrir krakkana er því ekki aðeins um skemmtilega siglingu að ræða heldur einnig tækifæri til að læra á annan hátt en í hefðbundinni kennslustofu.

Að þessu sinni lék veðrið við krakkana, fjörðurinn var spegilsléttur og mátti varla finna að þeir væru um borð í skipi. Vel veiddist og voru krakkarnir duglegir að borða fiskinn! Við hlökkum svo sannarlega til næstu Húnaferðar að ári.

/cdn/media/dalvikurskoli/4508.jpg?v=1790253493
/cdn/media/dalvikurskoli/b7526c48-53c7-4f99-bfdc-da78f35012ff-1_all_20872.jpg?v=1790253476
/cdn/media/dalvikurskoli/4505-1.jpg?v=1790253506