Framkvæmdaráð samþykkti þann 19.júní sl. að senda umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir niðursetningu grjóts í Sandvíkurfjöru neðan Fjörubaðanna á Hauganesi í grenndarkynningu skv. eftirfarandi bókun:
Erindi dagsett 9.júní 2026 þar sem Jóhann Guðni Reynisson f.h. Fjörubaðanna ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir niðursetningu á grjóti sem kennileiti framan við Fjöruböðin á Hauganesi.
Framkvæmdaráð samþykkir að grenndarkynna áformin skv. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum í Dalvíkurbyggð auk þess sem umsagna skal aflað frá þar til bærum opinberum aðilum. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Í grenndarkynningu felst að nágrönnum og öðrum þeim sem hagsmuna eiga að gæta eru kynnt fyrirhuguð áform og þeim gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir til skipulagsyfirvalda innan frests sem skal vera a.m.k. fjórar vikur.
Gögn varðandi framkvæmdina má nálgast hér fyrir neðan.
Lóðarhöfum í Dalvíkurbyggð er hér með gefinn kostur á að gera athugasemd við umrædd áform.
Frestur til að gera skriflegar athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd er til 23.ágúst 2026.
- Athugasemdum skal skilað til framkvæmdasviðs í Ráðhúsi Dalvíkur eða í tölvupósti á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is. Nafn, kennitala og heimilisfang sendanda þarf að koma fram í athugasemdum.
- Berist engar skriflegar athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd teljast allir aðilar samþykkir áformunum.
- Berist skriflegar yfirlýsingar frá öllum viðtakendum grenndarkynningar áður en frestur er úti, með áritun á grenndarkynningargögn, að þeir geri ekki athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd telst grenndarkynningunni lokið og með því styttist grenndarkynningarferlið.
Skipulagsfulltrúi
