Á 7.fundi framkvæmdaráðs Dalvíkurbyggðar þann 9.september sl. var samþykkt að senda umsókn um stöðuleyfi fyrir bát við Fjöruböðin á Hauganesi í grenndarkynningu skv. eftirfarandi bókun:
Erindi dagsett 13.ágúst 2026 þar sem Jóhann Guðni Reynisson f.h. Fjörubaðanna ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir bát á grasbakka við Fjöruböðin á Hauganesi.
Framkvæmdaráð samþykkir að grenndarkynna áformin skv. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt skal fyrir íbúum Dalvíkurbyggðar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Íbúum er hér með gefinn kostur á að gera athugasemd við umrædd áform.
Frestur til að gera skriflegar athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd er fjórar vikur, eða til 12.október 2026.
- Athugasemdum skal skilað til framkvæmdasviðs í Ráðhúsi Dalvíkur eða í tölvupósti á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is. Nafn, kennitala og heimilisfang sendanda þarf að koma fram í athugasemdum.
- Berist engar skriflegar athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd teljast allir aðilar samþykkir áformunum.
- Berist skriflegar yfirlýsingar frá öllum viðtakendum grenndarkynningar áður en frestur er úti, með áritun á grenndarkynningargögn, að þeir geri ekki athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd telst grenndarkynningunni lokið og með því styttist grenndarkynningarferlið.
Skipulagsfulltrúi
Fylgigögn:
