Fara í efni
28.07.2026

Gólfefni í íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar.

Deildu

Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í að láta fjarlægja og farga núverndi gólfefni í íþróttasal Íþróttamiðstöðvarinnar á Dalvík. Salurinn er 1.100 fermetrar að stærð eða 25 x 44 metrar. 

Um er að ræða 1.100 fermetra af gólfefni sem taka þarf upp og koma í burtu. Gólfefnið samanstendur af tveimur lögum af 12 mm krossviði á fjaðrandi gúmmípúðum. Ofan á efra kossviðslaginu er 5 mm gúmmíundirlag og svo 2 mm dúkur efst. Æskilegast er að saga gólfefnið í 2-3 fermetra búta og fjarlægja öll lögin í einu á hverjum bút fyrir sig. Sérstök áhersla er lögð á að steypt gólfplatan verði ekki fyrir skemmdum við verkið. 

Helstu magntölur: 

  • Krossviður - 2.200 fermetrar eða 264 rúmmetrar
  • Gúmmíundirlag og dúkur - 1.100 fermetrar eða 77 rúmmetrar

Huga þarf vel að öryggi notenda Íþróttamiðstöðvarinnar meðan á verki stendur og haga verki þannig að sem minnst rask verði á starfsemi hússins. 
Verk getur hafist um miðjan ágúst og áætluð verklok eru 31. ágúst 2026.

Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboði í verkið í heild sinni, þ.e. upptekt á núverandi gólfefni og förgun á því. Tilboðið skal innihalda allan kostnað við verkið með vsk.
Tilboðum í verkið má skila á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is merktum Tilboð í upptekt og förgun á gólfefni til og með mánudeginum 10. ágúst nk. 
Nánari upplýsingar veitir Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar í s. 853-0220 eða á helga@dalvikurbyggd.is