Fara í efni
10.11.2026 Fréttir

Gjafabréf - jólagjafir til starfsfólks Dalvíkurbyggðar og Dalbæjar

Deildu

Dalvíkurbyggð og Dalbær auglýsa eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Dalvíkurbyggð sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum, en þau eru jólagjafir til starfsmanna. 

Sama hefð - minni vinna!

Fyrirkomulagi gjafakortanna hefur verið breytt frá útprentuðum í rafræn. Starfsmenn nýta gjafabréfin í gegnum þjónustukerfi Gjafabref.is. Þau virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Dalvíkurbyggð. Verslunar- og þjónustuaðilar þurfa ekki lengur að senda reikninga til sveitarfélagsins vegna þeirra gjafabréfa sem innleyst eru hjá þeim, öll umsýsla fer í gegnum Gjafabref.is

Skilyrði fyrir þátttöku er að viðkomandi fyrirtæki sé skráð hjá hinu opinbera, sem og er starfandi í Dalvíkurbyggð. Skráningarfrestur er til 18. nóvember, en gjafabréfin verða afhent starfsfólki snemma í desember. 

Skráning fer fram á netfanginu runa@dalvikurbyggd.is, en senda þarf eftirfarandi:

  • Nafn og heimilisfang fyrirtækis
  • Kennitöu fyrirtækis
  • Nafn tengiliðs
  • Símanúmer fyrirtækis og tengiliðs

 Þegar skráning berst verður sendur upplýsingabæklingur um framkvæmdina.  Frekari upplýsingar veitir Rúna Kristín Sigurðardóttir sérfr. í mannauðs- og kjaramálum í runa@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4900