Á 391. fundi sveitarstjórnar þann 5. júní sl. var samþykkt samhljóða sú tillaga að fundir sveitarstjórnar verða að jafnaði haldnir þriðja þriðjudag hvers mánaðar í Ráðhúsi Dalvíkur í Upsa á 3. hæð kl. 16:15 og verða auglýstir með tveggja daga fyrirvara á heimasíðu Dalvíkurbyggðar. Jafnframt var samþykkt að streyma áfram fundum sveitarstjórnar í gegnum YouTube rás sveitarfélagsins og að upptakan verður aðgengileg án tímamarka. Fundir sveitarstjórnar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls, sbr. 12. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar.
Á sama fundi var samþykkt samhljóða að fundir byggðaráðs verði að jafnaði haldnir hvern fimmtudag kl. 13:15. Fundir byggðaráðs verða þó að jafnaði ekki haldnir í sömu viku og fundur sveitarstjórnar er.
