Framkvæmdir standa nú yfir við endurnýjun gólfefnis í stóra sal Íþróttamiðstöðvar Dalvíkurbyggðar. Eldra gólfefni salarins, sem samanstóð af dúk á tvöföldum spónaplötugrunni, hefur verið fjarlægt og í stað þess er verið að leggja nýtt íþróttaparket.

Það eru Horn í horn verktakar sem annast lagningu nýja gólfsins. Fyrirtækið sérhæfir sig í lagningu íþróttaparkets og býr yfir víðtækri reynslu á því sviði. Fyrir valinu varð fyrsta flokks hlynparket frá Aacer Flooring sem er sérstaklega valið með hliðsjón af notkun salarins og þeim aðstæðum sem íslenskt veðurfar og rekstur húsnæðis krefjast, meðal annars hvað varðar loftraka og hitastig.
Verkið hefur tafist nokkuð frá upphaflegri áætlun vegna seinkunar á afhendingu gólfefnisins. Nú er parketlögnin hins vegar langt komin og stefnt að því að henni ljúki um helgina.

Að lagningu lokinni þarf parketið að standa í um viku svo það nái að jafna sig áður en það verður pússað og lakkað í tveimur umferðum. Gangi áætlanir eftir verður hægt að hefja notkun salarins á ný um 20. október næstkomandi.
Dalvíkurbyggð hlakkar til að taka á móti íþróttafólki, skólahópum og öðrum notendum í endurnýjuðum sal sem mun bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar og viðburðahalds um ókomin ár.
