Fara í efni
18.05.2026

Dalvíkurbyggð semur við Stefnu um nýja heimasíðu

Deildu

Samningur við Stefnu vefhönnuði um þróun og uppsetningu nýrra heimasíðna fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess var samþykktur í sveitarstjórn 20. janúar sl. Um er að ræða heildarendurnýjun á vefsvæði Dalvíkurbyggðar, þar á meðal www.dalvikurbyggd.is.

Markmið verkefnisins er að bæta þjónustu við íbúa með nútímalegri, aðgengilegri og notendavænni heimasíðu. Jafnframt er lögð áhersla á að samræma framsetningu og upplýsingamiðlun milli sveitarfélagsins og undirstofnana þess.

Vinna í fullum gangi

Vinna við verkefnið er nú í fullum gangi í samstarfi við Stefnu. Unnið er að uppbyggingu nýs vefumhverfis, hönnun og yfirfærslu efnis, auk þess sem sérstök áhersla er lögð á skýrari framsetningu upplýsinga og bætt aðgengi fyrir notendur.

Ný heimasíða Dalvíkurbyggðar mun endurspegla betur þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir og auðvelda íbúum að nálgast upplýsingar og þjónustu á einum stað.