Fara í efni
24.06.2026

Dagsetningar fjallskila og gangna haustið 2026 samþykktar

Deildu

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt dagsetningar fjallskila og gangna haustið 2026, í samræmi við tillögu framkvæmdaráðs.
Samkvæmt samþykktinni verða göngur skipulagðar með eftirfarandi hætti:

  • Svarfaðardalsdeild og Dalvíkurdeild:
    Fyrri göngur fara fram helgina 11.–12. september og seinni göngur helgina 18.–19. september.
  • Árskógsdeild:
    Fyrri göngur fara fram helgina 4.–5. september og seinni göngur viku síðar.
  • Skíðadalsafréttir (Holárafrétt, Sveinsstaðarafrétt og Kóngsstaðardalur):
    Hrossasmölun og eftirleit fer fram 3. október.